,,Framsækni – Að tjá sig af öryggi”
3 klst. Fjöldi 15-30 manns.
Tilvalið fyrir þá sem þurfa starfs síns vegna að koma fram og halda ræður eða kynningar. Fyrirtæki í dag gera þær kröfur til stjórnenda og millistjórnenda að þeir geti komið fram og haldið ræður og kynningar fyrir hönd fyrirtækisins. Aldrei fyrr hefur fólk þurft að markaðssetja sig eða starf sitt í jafn ríkum mæli. Í launaviðtölum og starfsumsóknum er mikilvægt að koma fram af öryggi. Það þarf að þjálfa örugga framkomu eins og vöðvana og því er nauðsynlegt að halda sér við og bæta sig.
Á námskeiðinu er rætt um:
*Undirbúning kynningar/ræðu
*Að takast á við sviðsskrekk
*Tækni við góða kynningu/ræðu
*Líkamsstöðu og ímyndarsköpun.
*Hvað virkar og hvað virkar ekki í ræðupúlti?
*Finndu þinn persónulega stíl og útgeislun.
Þeir sem nýtta hafa sér námskeiðið eru fjölbreyttir hópar vinnustaða og félagasamtaka.
MEÐMÆLI:
Ég undirrituð var á Ráðstefnu í Blá Lóninu 4-5 maí sl.þar sem Sirrý kom og var með okkur fyrsta kvöldið.Hún sagði okkur ýmislegt fróðlegt og kenndi okkur aðferð sem við gætum notað þegar við þyrftum að koma fram og td.halda ræðu.Ég þakka henni ynnilega fyrir það.Ég hef notað þessa aðferð mjög mikið síðan og hefur það gefið mér ómældan styrk og hef ég nýtt mér þetta bæði í hinu daglega lífi og eins þegar ég hélt ræðu.Sirrý er svo gefandi og yndislegur persónuleiki.Heint FRÁBÆRT hjá henni.
Hjartans þakkir og kær kveðja.
Jóna Sigríður Gestsdóttir
Meðmæli með námskeiði í samstarfi við Vinnumálastofnun:
,,Námskeiðið veitti mér gleði og efldi minn persónulega þroska.
Námskeiðið fór langt umfram mínar væntingar.. Takk kærlega fyrir mig Sirrý.
Námskeiðið kenndi mér að tileinka mér jákvæðni og hafa trú á sjálfri mér.
Leit aldrei á klukku, námskeiðið var svo skemmtilegt."
Soffía viðskiptafræðingur og kennari.
Meðmæli með námskeiðinu ,,Framsækni - Örugg tjáning" í samstarfi við Vinnumálastofnun:
,,Sæl Sirrý og þakka þér fyrir námskeiðið sem ég var hjá þér á vegum vinnumálastofnunar.
Ég er mjög ánægð með að hafa fengið tækifæri til að fara á svona námskeið og finnst frábært af Vinnumálastofnun að hafa metnað
til að bjóða fólki í atvinnuleit upp á svona námskeið.
Þetta hafði mjög hvetjandi áhrif á mig og mun hjálpa mér í framtíðinni að leyta að starfi og efla mig sem manneskju."
Bestu kveðjur Ragnheiður
Meðmæli með námskeiði hjá BHM:
,,Það sem ég lærði á námskeiðinu hefur gefið mér hugrekki til að stíga inn í aðstæður sem ég þorði ekki áður. Það er námskeiðinu að þakka að ég hef kjark til að slá í glas í brúðkaupi vinkonu minnar og flytja henni ræðu. Takk fyrir mig“
Anna Margrét
Meðmæli með námskeiði á vegum VR:
,,Ég þakka kærlega fyrir skemmtilegt námskeið, ég hafði mjög gaman og gagn af þessu, hún Sirrý gerði þetta mjög vel, þetta er í eitt af þeim fáum skiptum sem að ég hef farið á námskeið
þar sem að það lá engum á að komast í reyk eða pásu!
Og ekkert geisp..........! Mjög gott."
Finnur Númason
Trúnaðarmaður VR
MEÐMÆLI:
,,Ég þarf í mínu starfi að halda fyrirlestra og ræður á ýmsum stöðum og einnig að hafa samskipti við fjölmiðla. Námskeið Sirrýjar um framsækni og örugga tjáningu er í einu orði sagt frábært. Gagnlegt, fræðandi, skemmtilegt, áhugavert eru það sem mér dettur fyrst í hug. Mér fannst það líka mannbætandi í þeim skilningi að auka jákvæðni og sjálfstraust. Námskeiðið fær mín bestu meðmæli og ég veit að það sem ég lærði þar mun nýtast mér í framtíðinni. Kærar þakkir Sirrý og BHM!!"
Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður
Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna
MEÐMÆLI
,,BHM fékk Sirrý til að halda námskeiðið "Framsækni, að tjá sig af
öryggi" fyrir forsvarsmenn stéttarfélaganna sem lið í undirbúningi
kjarasamninga sl. vor.
Farið var yfir helstu atriði um framkomu í fjölmiðlum og við ræðuflutning. Einnnig var komið inn á hagnýt atriði varðandi fréttatilkynningar og samskipti við fjölmiðla. Blandað var saman gamni og alvöru, fréttaviðtal var tekið við alla þátttakendur fyrir framan
upptökuvél og einnig voru ræður teknar upp. Hópurinn skoðaði svo myndskeiðin í sameiningu. Að námskeiðinu loknu fengu allir þátttakendur geisladisk með efninu.
Námskeiðið vakti mikla hrifningu og var uppfullt af góðum og hagnýtum ráðum sem hafa nýst vel. Þátttakendur höfðu mjög mismikla reynslu af opinberri framkomu en námskeiðið nýttist öllum vel, vönum jafnt sem byrjendum. Nú þegar höfum við bókað næsta námskeið því færri komust að en vildu hjá okkur sl. vor. Við getum hiklaust mælt með námskeiðinu
og veitum því Sirrý okkar bestu meðmæli."
Stefán Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri BHM
Ragnheiður Eiríksdóttir, nýsköpunar- og þróunarstjóri BHM
________________________________________________________________________
Meðmæli með námskeiðum á Seyðisfirði
,,Ég hef tekið þátt í námskeiði hjá Sirrý og var reynsla mín af því afar góð. Vel var að námskeiðinu staðið, skilmerkilega sett fram og var fagmennska og einlægni í fyrirrúmi en komst til skila á einfaldan, skýran en jafnframt léttan hátt. Námskeiðið gaf góða innsýn inn í heim ræðumennsku og efldi okkur til dáða með hagnýtum leiðum. Ekki spurning að námskeiðið jók hæfni mina."
Anna Karlsdóttir skrifstofustjóri
,,Á sl.ári sótti undirrituð félagsmálanámskeið hjá Sirrý.
Hefi sótt mörg félagsmálanámskeið um ævina, þetta er það besta hingað til. Sirrý er mjög hlý manneskja, öruggur stjórnandi og hefur mikla útgeislun."
Þórdís Bergsdóttir framkvæmdastjóri Seyðisfirði
----------------------------------------------------
Meðmæli með ,,Ný og betri" lífsstílsnámskeiðum á Tenerife
,,Ný og betri: Þessi vika var alveg frábær. Við systur komum endurnærðar heim með fullt að frábærum hugmundum um líf og sál
Það var staðið 100% vel að öllu. Mér fannst Sirrý og Bjargey fullkomnar í þessu verkefni:
Þar sem hreyfing og sjálfstyrking fór vel saman.
Þessi vika gaf mér meira en ég get lýst í orðum og ég kom heim ný og betri manneskja."
Agnes Sigurðardóttir
Bruggsmiðjan ehf. Árskógssandi
Upplýsingar um verð og tímasetningar: sirry@sirry.is og í síma: 897-8858
|