16.01.2012
 Fjölbreytt ný námskeið í boði

Búið er að panta ýmis námskeið fyrir félagasamtök, hópa og vinnustaði fram í október 2012. En hikið ekki við að hafa samband og kanna hvort það er ekki einmitt eitthvað fyrir ykkur í boði hjá mér. Mörg fyrirtæki vilja efla starfsandann, og veita starfsfólki tækifæri til að lyfta sér upp og efla sig bæði fagleg og persónulega. Námskeið í ,,Samskiptafærni" og ,,Að laða til sín það góða" er tilvalin leið til að efla hópinn. Fyrirtæki eins og Landsvirkjun, Össur og fleiri hafa líka fengið þjálfun hjá mér fyrir starfsfólk sem vill bæta færni sína í fjölmiðlaframkomu, viðtalstækni og samskiptum við fjölmiðla. Hikið ekki við að senda mér fyrirspurn á sirry@sirry.is Kveðja, Sirrý

Nánar »  
 03.11.2011
 Nýtt námskeið í SAMSKIPTAFÆRNI fyrir VR félaga

Hið vinsæla námskeið: Samskiptafærni er aftur að fara af stað hjá VR í Húsi verslunarinnar á þriðjudögum frá og með 15.nóveber. Námskeiðið er frítt fyrir þá félagsmenn í VR sem eru í atvinnuleit. Skráning hjá Betty@vr.is

Nánar »  
 03.11.2011
 Uppselt síðast - AUKAFYRIRLESTUR 22. nóv

Upppselt var á síðasta Opna fyrirlesturinn ,,Að laða til sín það góða" í Heilsuborg. Því var ákveðið að bæta við aukafyrirlestri þriðjudagskvöldið 22.nóv. Kl. 19:30-22 í Heilsuborg, Faxafeni 14. Skráning í Heilsuborg s: 560-1010 eða mottaka@heilsuborg.is

 

Nánar »  
 18.04.2011
 Opinn fyrirlestur með Sirrý 28.apríl 2011 í Heilsuborg

,,Að laða til sín það góða" heitir opinn fyrirlestur með Sirrý í Heilsuborg, Faxafeni 14, fimmtudaginn 28.apríl frá kl. 19:30-22. Léttur og einlægur fyrirlestur um samskiptafærni, hvaða strauma við sendum frá okkur og hvernig við getum látið drauma okkar rætast þrátt fyrir mótbyr. Happdrættisvinningar, heilsuglaðningar og vikupassi í Heilsuborg er innifalið í verðinu sem er aðeins kr. 1.950.- Skráning: heilsuborg@heilsuborg.is eða s: 560-1010.

Síðast var uppselt.

Nánar »  

1  2  3  4  5  6  7  Næsta síða 
Sigríður Arnardóttir Sirry@sirry.is S. 897-8858
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is